05. maí 2006
Efnahagsreikningur Seđlabanka Íslands í lok apríl 2006
Í međfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seđlabanka Íslands í lok apríl 2006 og til samanburđar í lok mars 2006 og í lok desember 2005.
Gjaldeyrisforđi bankans dróst saman um 13,7 milljarđa króna í mánuđinum og nam 66,2 milljörđum króna í lok hans sem jafngildir 888 milljónum Bandaríkjadala miđađ viđ gengi í mánađarlok. Gjaldeyrisforđinn lćkkađi vegna lánahreyfinga ríkissjóđs. Eins og bankinn hefur áđur greint frá (t.d. í frétt nr. 26/2005 og í Peningamálum 2005/3) hefur hann keypt gjaldeyri á innlendum millibankamarkađi fyrir hönd ríkissjóđs frá ţví í september sl. til ţess ađ mćta endurgreiđslu erlendra lána ríkisjóđs 2006, ţ.m.t. skuldabréfalán ađ fjárhćđ 250 milljónir evra sem féll í gjalddaga í apríl sl. Á móti lćkkun forđans af völdum lánahreyfinga ríkissjóđs vógu m.a. gengishagnađur og reglubundin kaup Seđlabankans á gjaldeyri á innlendum markađi.
Gengi íslensku krónunnar veiktist í apríl um 5,4%.
Kröfur Seđlabankans á innlánsstofnanir lćkkuđu um 8,1 milljarđ króna í apríl og námu 86 milljörđum króna í lok mánađarins.
Kröfur á ađrar fjármálastofnanir lćkkuđu um 1,9 milljarđa króna og námu 14,6 milljörđum króna í mánađarlok.
Markađsskráđ verđbréf í eigu bankans námu 1,6 milljörđum króna í lok apríl miđađ viđ markađsverđ.
Skuldir Seđlabankans viđ innlánsstofnanir lćkkuđu um 13,5 milljarđa króna í mánuđinum og námu 29,9 milljörđum króna í apríllok.
Nettóinnstćđur ríkissjóđs og ríkisstofnana lćkkuđu um 15,2 milljarđa króna og námu 76,9 milljörđum króna í lok apríl.
Grunnfé bankans lćkkađi í apríl um 13,7 milljarđa króna og nam 42,9 milljörđum króna í mánađarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seđlabanka Íslands og Erla Árnadóttir ađalbókari í síma 569-9600.
Fréttin í heild međ tölfu (pdf-skjal 39kb)
Nr. 16/2006
5. maí 2006