04. ágúst 2006
Efnahagsreikningur Seđlabanka Íslands í lok júlí 2006
Í međfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seđlabanka Íslands í lok júlí 2006 og til samanburđar í lok júní 2006 og í lok desember 2005.
Gjaldeyrisforđi bankans dróst saman um 2,5 milljarđa króna í mánuđinum og nam 74,3 milljörđum króna í lok hans sem jafngildir 1.024 milljónum Bandaríkjadala miđađ viđ gengi í mánađarlok. Gjaldeyrisforđinn breyttist vegna reglubundinna kaupa Seđlabankans á gjaldeyri á innlendum markađi og gengistaps.
Gengi íslensku krónunnar styrktist í júlí um 3,7%.
Kröfur Seđlabankans á innlánsstofnanir hćkkuđu um 20,6 milljarđa króna í júlí og námu 110 milljörđum króna í lok mánađarins.
Kröfur á ađrar fjármálastofnanir hćkkuđu lítillega og námu 11,6 milljörđum króna í mánađarlok.
Markađsskráđ verđbréf í eigu bankans námu 1,5 milljörđum króna í lok júlí miđađ viđ markađsverđ.
Seđlar og mynt í umferđ utan Seđlabankans námu 14,5 milljörđum króna í lok júlí og höfđu aukist um 1,3 milljarđa króna frá áramótum.
Skuldir Seđlabankans viđ innlánsstofnanir hćkkuđu um 7,1 milljarđa króna í mánuđinum og námu 37,9 milljörđum króna í júlílok.
Skuldir Seđlabankans viđ ríkissjóđ og ríkisstofnanir hćkkuđu um 13,1 milljarđ króna og námu 97,7 milljörđum króna í lok júlí.
Grunnfé bankans hćkkađi í júlí um 7,7 milljarđa króna og nam 52,4 milljörđum króna í mánađarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seđlabanka Íslands og Erla Árnadóttir ađalbókari í síma 569-9600.
Fréttin í heild međ töflu (pdf-skjal 38 KB)
Nr. 28/2006
4. ágúst 2006