13. júní 2001
Skýrslur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland
Í gær, þriðjudaginn 12. júní, birti
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn skýrslur um Ísland á heimasíðu sinni. Annars vegar er
um að ræða skýrslur sem samdar voru eftir reglubundna árlega heimsókn
sérfræðinga sjóðsins hingað til lands í janúar sl. Hins vegar er um að ræða
skýrslu um úttekt sérfræðinga sjóðsins á íslensku fjármálakerfi sem hófst í
nóvember sl.
Forsaga seinni skýrslunnar er sú að á undanförnum árum hefur á
alþjóðavettvangi verið unnið að því að treysta undirstöður fjármálalegs
stöðugleika. Þessi vinna fór fram í samstarfi ýmissa alþjóðastofnana með
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í broddi fylkingar. Hún hefur m.a. leitt til þess að
vaxandi áhersla er nú lögð á að efla eftirlit með starfsemi fjármálastofnana í
öllum aðildarlöndum sjóðsins og að tryggja trausta umgjörð um starfsemi þeirra.
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum var falið að gera úttektir á fjármálakerfi
aðildarlanda, kanna uppbyggingu þess, áhættuþætti og lagaumgjörð. Ekki er gert
ráð fyrir að lokið verði úttektum í öllum aðildarlöndunum fyrr en að fáeinum
árum liðnum. Fyrstu úttektirnar voru gerðar síðla árs 1999. Í hópi fyrstu landa
voru m.a. Kanada, Írland og Eistland. Frá úttektinni hér á landi var m.a. greint
í ársskýrslu Seðlabankans fyrir árið 2000.
Við gerð skýrslunnar var farið yfir lög og reglur um fjármagnsmarkaðinn,
þ.m.t. um Seðlabanka Íslands, og fyrirkomulag eftirlits með starfsemi
fjármálastofnana. Metið var að hve miklu leyti peningastefnan og eftirlit með
starfsemi fjármálastofnana uppfylla reglur um gagnsæi sem settar hafa verið af
hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og farið yfir þjóðhagslegar aðstæður með tilliti
til fjármálastöðugleika.
Meginniðurstöður skýrslnanna sem birtar voru í gær eru hinar sömu og í lok
heimsóknar sendinefndar sjóðsins hingað til lands í janúar sl., sbr. frétt
Seðlabanka Íslands nr. 3/2001, 23. janúar 2001. Allar skýrslurnar voru ræddar í
framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins snemma í maí. Í kjölfar þess (24.
maí) gaf sjóðurinn út frétt um niðurstöður þeirra sem m.a. var greint frá í
fjölmiðlum hér á landi.
Sem fyrr segir eru skýrslurnar á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (www.imf.org).
Nánari upplýsingar veita Birgir Ísl. Gunnarsson formaður bankastjórnar
Seðlabanka Íslands og Ingimundur Friðriksson aðstoðarbankastjóri í síma
569-9600.
Nr. 22/2001
13. júní 2001