11. mars 2003
Leiðréttur greiðslujöfnuður og erlend staða þjóðarbúsins
Vegna mistaka við uppgjör erlendra lána þarf að leiðrétta
fréttatilkynningu nr. 6/2003 um greiðslujöfnuð við útlönd og erlenda stöðu
þjóðarbúsins 2002. Við þessa leiðréttingu lækka erlendar skuldir um 18,3
milljarða króna og batnar hrein staða þjóðarbúsins samsvarandi. Erlendar skuldir
námu 544,4 milljörðum króna umfram eignir í árslok 2002. Skuldahlutföll lækka
hlutfallslega við áætlaða landsframleiðslu ársins og reiknast hrein staða
þjóðarbúsins neikvæð um 75% af VLF 2002 samanborið við 76% í árslok 2001.
Jöfnuður þáttatekna batnar vegna minni vaxtagreiðslna af erlendum skuldum.
Afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd verður því heldur meiri en áður var
talið, eða 1,8 milljarðar króna. Fjármagnsjöfnuður breytist einnig þar sem
erlendar lántökur hins opinbera, þ.e. ríkis og sveitarfélaga lækka en
fjárinnstreymi eykst í heild vegna minni endurgreiðslna af erlendum lánum
innlánsstofnana en áður var talið.
Greiðslujöfnuður við útlönd í
milljörðum króna
|
Október- |
desember |
|
Janúar- |
desember |
|
2001 |
2002 |
|
2001 |
2002 |
Viðskiptajöfnuður
|
6,9 |
-0,6 |
|
-29,0 |
1,8 |
Útflutningur vöru og
þjónustu |
82,7 |
72,1 |
|
303,6 |
307,3 |
Innflutningur vöru og
þjónustu |
-73,5 |
-71,1 |
|
-307,3 |
-293,5 |
Þáttatekjur og framlög,
nettó |
-2,3 |
-1,5 |
|
-25,4 |
-12,1 |
Fjármagnsjöfnuður
|
3,9 |
2,9 |
|
32,0 |
1,7 |
Hreyfingar án
forða |
2,6 |
-8,0 |
|
26,8 |
7,5 |
Gjaldeyrisforði (-
aukning) |
1,3 |
11,0 |
|
4,8 |
-5,7 |
Skekkjur og vantalið
nettó |
-10,8 |
-2,4 |
|
-3,0 |
-3,5 |
Leiðréttar upplýsingar
um greiðslujöfnuðinn við útlönd og erlenda stöðu þjóðarbúsins er að finna í
meðfylgjandi töflum og í hagtölum á heimasíðu Seðlabankans.
Nánari
upplýsingar veitir Jakob Gunnarsson deildarstjóri á tölfræðisviði Seðlabanka
Íslands í síma 569-9600.
Frétt nr. 8/2003
11. mars
2003
Fréttin í heild ásamt meðfylgjandi
töflum (pdf-skjal, 434 kb)