07. maí 2003
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
apríl 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í apríl 2003
og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 2,6
milljarða króna milli mánaða og nam 38,5 milljörðum króna í lok apríl (jafnvirði
513 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán
bankans hækkuðu í mánuðinum um 0,9 milljarða króna og námu þau 11,1 milljarði
króna í lok hans.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum
millibankamarkaði fyrir 2,1 milljarð króna, og er það er í samræmi við áætlun
hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í
fréttatilkynningum bankans nr. 28/2002 og 2/2003 Gengi íslensku krónunnar
styrktist í apríl um 0,5%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,8
milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð. Þar af námu
markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.
Kröfur
Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 2,9 milljarða króna í apríl og námu
71 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust
óverulega og námu 8,4 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur
bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,8 milljarða króna í apríl og
námu nettóinnstæður ríkissjóðs 25,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans lækkaði í apríl um 0,3 milljarða króna og nam það 36,8
milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 12/2003
7. maí 2003
<'xml:namespace prefix = o ns =
"urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
|
Helstu
liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans |
|
í
milljónum króna |
|
|
|
|
|
|
Staða í lok
tímabils |
Hreyfingar
2003 |
|
Desember |
Apríl |
Frá
ára- |
Í |
Eignaliðir
: |
2002 |
2003 |
mótum |
apríl |
|
|
|
|
|
Gjaldeyrisforði |
37.194 |
38.499 |
1.304 |
2.559 |
Markaðsskráð
verðbréf |
5.260 |
4.821 |
-440 |
219 |
Ríkissjóðs |
1.816 |
1.184 |
-631 |
17 |
Annarra |
3.445 |
3.636 |
192 |
201 |
Kröfur á
innlánsstofnanir |
69.141 |
70.958 |
1.817 |
-2.889 |
Kröfur á aðrar
fjármálastofnanir |
8.227 |
8.367 |
140 |
292 |
|
|
|
|
|
Skuldaliðir: |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Erlendar skuldir til skamms
tíma |
16.499 |
11.060 |
-5.439 |
882 |
Seðlar og
mynt |
9.590 |
9.421 |
-169 |
317 |
Almennar innstæður
innlánsstofnana |
1.164 |
2.052 |
888 |
908 |
Staða á bindireikningum
innlánsstofnana |
21.837 |
25.364 |
3.527 |
-1.468 |
Almennar innstæður annarra
fjármálastofnana |
75 |
98 |
22 |
19 |
Staða á bindireikningum
annarra fjármálastofnana |
1.258 |
713 |
-545 |
-3 |
|
|
|
|
|
Liðir til skýringar
: |
|
|
|
|
Gjaldeyrisstaða
Seðlabankans, nettó: |
20.696 |
27.439 |
6.743 |
1.677 |
Kröfur á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, nettó: |
-20.846 |
-25.885 |
-5.039 |
822 |
Kröfur á aðra,
brúttó |
77.454 |
79.434 |
1.980 |
-2.615 |
Grunnfé: |
32.590 |
36.837 |
4.246 |
-242 |
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir
brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna
eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á
innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru
brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna
skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja
gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt
sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og
annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í
Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt
að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem
sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms
tíma, í öðru lagi nettókröfur
Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við
Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar
brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast
seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í
Seðlabankanum.