22. júní 2004
Arnór Sighvatsson ráðinn aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að ráða
Arnór Sighvatsson aðalhagfræðing bankans sem jafnframt er framkvæmdastjóri
hagfræðisviðs bankans. Ráðningin gildir frá 23. júní 2004.
Arnór hefur verið staðgengill aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands frá 1995 og
deildarstjóri á hagfræðisviði bankans, en hann hóf störf í bankanum árið
1990. Um tveggja ára skeið var Arnór aðstoðarmaður framkvæmdastjóra hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington. Þá starfaði hann um hríð við
háskólakennslu í Bandaríkjunum og vann um skeið á Hagstofu Íslands.
Arnór lauk doktorsprófi í hagfræði árið 1990 frá Northern Illinois University
í Bandaríkjunum, en hafði áður lokið mastersprófi þaðan í sömu grein.
Arnór hefur ritað fjölda greina í fræðileg og fagleg tímarit um efnahagsmál
og peningamál, einn eða í samvinnu við aðra. Meginviðfangsefni Arnórs í þessum
greinum hafa verið alþjóðleg efnahagsmál, alþjóðaviðskipti, gengismál og
peningamál. Þá hefur Arnór sinnt ýmsum nefndar- og stjórnarstörfum fyrir
Seðlabanka Íslands.
Arnór er fæddur árið 1956, er kvæntur Eddu Hrönn Atladóttur og eiga þau þrjú
börn.
Aðrir umsækjendur um stöðu aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands voru Ásgeir
Daníelsson, Jóhann Rúnar Björgvinsson, Þorsteinn Þorgeirsson og Þórarinn G.
Pétursson.
Nr. 18/2004
22. júní 2004