Rit og skýrslur

Seðlabankinn sinnir fjölþættri útgáfustarfsemi, einkum í því skyni að koma upplýsingum um verðlags- og peningamál, stöðu fjármálastofnana og fleira á framfæri við almenning og ýmsa erlenda aðila.

Margvíslegar niðurstöður af skýrslugerð eru birtar í Ársskýrslu Seðlabankans, sem einnig er gefin út á ensku.

Peningamál koma nú út fjórum sinnum á ári. Í byrjun maí og byrjun nóvember er þar birt verðbólgu- og þjóðhagsspá ásamt ýtarlegri umfjöllun um þróun og horfur í efnahags- og peningamálum. Í janúar og ágúst er birt uppfærð verðbólgu- og þjóðhagsspá með stuttri umfjöllun um þróun og horfur efnahags- og peningamála. Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Monetary Bulletin.

Í Fjármálastöðugleika er árlega birt yfirlit yfir stöðu fjármálakerfisins, þ.e. um styrk þess og hugsanlega veikleika og áhættu sem því kann að vera búin bæði af þjóðhagslegum og rekstrarlegum toga. Í ritinu greinir Seðlabankinn frá því hvernig hann vinnur að verkefnum sem varða virkt og öruggt fjármálakerfi. Þá eru í ritinu  aðrar  greinar um fjármálastöðugleika. Fjármálastöðugleiki er einnig gefinn út á ensku undir heitinu Financial Stability.

Þá hefur bankinn einnig birt ritið Economy of Iceland, sem einkum er ætlað starfsmönnum erlendra fyrirtækja og stofana.

Höfundamerktar greinar sem áður voru birtar í Peningamálum verða nú birtar í sérstöku vefriti Efnahagsmálum.
Greinar í ritinu birtast einnig á ensku undir heitinu Ecconomic Affairs. Greinarnar verða teknar saman í prentuðu formi í lok hvers árs.

Seðlabanki Íslands birtir opinberlega mánaðarlegt yfirlit efnahagsmála og safn hagvísa, Hagvísa Seðlabanka Íslands. Það er fyrst og fremst miðað við birtingu á vef bankans. Hagvísarnir eru einnig gefnir út á ensku undir heitinu Economic Indicators.

Að auki birtir bankinn ýmsar skýrslur, m.a. röð rannsóknarritgerða undir heitinu Working Papers.

Bankinn gaf út Fjármálatíðindi frá árinu 1964 fram til ársins 2007, en í því voru birtar greinar um hagfræði og efnahagsmál.

Seðlabankinn hefur nokkrum sinnum gefið út viðamikið rit á ensku um íslenskt samfélag, Iceland, sem kom síðast út 1996. Fyrsta útgáfa þess rits var árið 1936 á vegum Landsbanka Íslands. Þá birtir Seðlabankinn skýrslur og sérrit um málaflokka er tengjast starfsemi hans eftir því sem tilefni gefast til.

Flest þessara rita er að finna á tölvutæku formi á vef bankans, sjá tengla hér til vinstri.